Fyrrilífsdáleiðsla

- Fyrrilífsdáleiðslu lærði ég hjá Vigdísi Steinþórsdóttur eftir að ég fór til hennar í tvö skipti og var ég algjörlega háð því hvort að eitthvað í þessu lífi sé tengt okkar fyrri lífum.

Double rainbow arches over a dark silhouette of a coastal landmass against a colorful, cloudy sky.
Two black and white leaves on a stem.

Hvernig fer Fyrrilífsdáleiðsla fram?

Tíminn byrjar á viðtali þar sem við förum yfir hvað þú vilt kanna, hvort sem það eru tengsl þín við aðra manneskju, líkamleg eða andleg mein eða einfaldlega þitt besta líf hingað til. Ég leiði þig síðan í leidda djúpslökun þar til þú segir mér frá því hvað þú ert stödd/staddur. Ég mæli með að taka upp tímann, þar sem það er oft gott að hlusta aftur á það líf sem kemur upp.

Hver er tilgangurinn með fyrrilífsdáleiðslu?

Hefurðu einhvern tímann hugsað að þú hefur örugglega unnið með, verið með eða barist við einhverja manneskju í fyrra lífi? Hefurðu einhvern tímann pælt í því að við komum ekki bara einu sinni á þessa jörð til að lifa, heldur hljótum við að vera hluti af þessari hringrás sem þessi jörð er?


Við erum alltaf öll að læra í lífinu. Til að læra allt það sem við eigum að læra förum við í gegnum mörg líf, þar sem við lærum að missa, syrgja, krumpast og allt það sem við getum farið í gegnum aftur og aftur án þess að læra nokkuð. Með fyrrilífsdáleiðslu er hægt að losa um það sem við höfum upplifað áður, munum ekki eftir en það er fast í okkar líkama eða undirmeðvitund.

Það að skilja hvað gerðist og af hverju hjálpar þér til að leysa og læra að láta ekki koma svona fram við þig, standa með þér, skilja aðra og segja það sem þú þarft að segja.


Það er mjög algengt að við ferðumst í knippum og að þau sem við erum að ferðast með í þessum lífum séu í þínum fyrri lífum og erum mögulega með mun flóknara samband við suma af okkar nánasta fólkið.
Dáleiðslan miðar alltaf að því að styrkja þig, innra öryggi, sjálfsvitund, sjálfsvirðingu og sjálfstraust og gefur þér stundum nýja sýn á þá hæfileika sem þú býrð yfir.