markþjálfun
- Markþjálfun er það sem hjálpar mér aftur og aftur að komast upp úr holum og gefur mér orkuskot og drifkraft til að vinna að markmiðum mínum - hversu mismunandi sem þau eru.
Markþjálfun er svo dásamleg viðtalstækni, þar sem við finnum út í sameiningu hvert þú vilt stefna og hvaða mismunandi skref þú þarft að taka til að komast þangað. Ég sem markþjálfi er með þér í liði og hvet þig áfram í þeim draumum og markmiðum sem þú kemur með, hversu mismunandi sem þau eru. Það er magnað hvað við getum meira en við höldum og með því að koma í markþjálfun færð þú rými til að hlusta á þig, ég spegla það sem þú ert að segja og í gegnum samtalstæknina finnum við út hvað það er í raun sem skiptir þig máli.
Við lifum í svo ótrúlega hröðu samfélagi núna að það er varla tími né rými fyrir okkur að hlusta á okkur sjálf og þess vegna mæli ég svo mikið með að öll prófi að fara í markþjálfun einhvern tímann yfir ævina.
Þú ert aldrei of gömul/gamall/gamalt til að byrja, hlusta á þig, prófa nýja hluti eða koma þér upp úr gömlu fari.
Hvað þarftu akkúrat núna?
Komdu til mín og við finnum það út – saman.
