lærðu

að elska þig

- Stattu með þér og láttu drauma þína rætast

Black heart shape on a white background.

Fyrir hverja er þerapían?

Öll ykkar sem viljið vinna í ykkur á krefjandi en skemmtilegan hátt, fyrir ykkur sem tengið við söguna mína og viljið kíkja í tíma til mín og fyrir ykkur sem elskið að ögra ykkur með sjálfsvinnu.


Fyrir ykkur öll sem hugsið núna "já veistu, ég ætla að kýla á þetta".

Þerapían, lærðu að elska þig

Þerapían Lærðu að elska þig er samin af þerapistanum Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur og hefur í gegnum tíðina hjálpað mikið af fólki að finna sjálf/a/n/t sig, standa með sjálfri/sjálfum sér og láta drauma sína rætast á ótrúlegan hátt. Ég fór sjálf í gegnum þerapíuna með Ósk á mínum dimmasta tíma og hjálpaði hún mér að sjá líf mitt og tilgang í allt öðru ljósi.


Þerapían og verkefnin hjálpuðu mér í gegnum móðurmissi, hjálpuðu mér að tengja saman atburði og lærdóm í æsku og krumpið mitt í dag, standa með mér og mínum draumum og gildum og leiddu mig að lífinu sem ég á í dag. Vinnan er allt annað en auðveld en langbesta sjálfsvinna sem ég hef gefið mér. Svo mikið að í dag er ég útskrifaður leiðbeinandi í þerapíunni og elska að aðstoða fólk við að fylgja hjartanu sínu.

Black heart shape on a white background.

Hvað þýðir að elska sig?

  • Að elska þig þýðir að hlusta á innsæið og hjartað og finna leið til að láta drauma sína rætast.

  • Að elska þig þýðir að geta liðið vel ein/n/tt með þér og fundist þú bara fjandi skemmtilegur félagsskapur.

  • Að elska þig þýðir að trúa því að þú átt allt það dásamlega skilið sem þú vilt í heiminum.

  • Að elska þig þýðir að finna ástríðuna þína, það sem þú brennur fyrir, og fylgja henni.

  • Að elska þig þýðir að treysta. Treysta þér og treysta ferðinni sem lætur drauma þína rætast.​

En elska ég mig ekki nóg bara?

Öll höfum við eitthvað óöryggi eða einhverja fortíð og "triggera", hversu litlir eða stórir þeir eru. Við erum flest öll að bera með okkur eitthvað sem gerðist í æsku eða einhvern tímann í lífinu, hvort sem það er setning sem situr í hausnum á okkur, gömul sár sem gróa ekki, lífsreynsla sem breyttu okkur, ofbeldi af einhverju tagi eða einfaldlega eitthvað krump sem við burðumst með án þess að fatta það.


Hvernig við tölum við okkur inn í hausnum okkar skiptir gríðarlegu máli. Setningar sem fylgja okkur í gegnum lífi sem voru líklega saklausar þegar þær voru sagðar hafa áhrif á okkar líðan og sjálfsást. Orðin sem við brjótum okkur niður með myndum við aldrei segja við vini okkar og jafnvel aldrei við fólk sem okkur líkar ekki við.


Það að hrósa sjálfum okkur reynist vera erfiðara en við höldum og að taka hrósi alveg inn í hjartað er mörgum ómögulegt.​ Að elska sjálfa/n þig snýst um að geta faðmað, hrósað og peppað þig upp án þess að hlusta á það sem aðrir segja. Að geta tekið ákvarðanir útfrá því sem þú vilt gera en ekki útfrá öðrum. Að lifa þínu lífi útfrá því sem þig dreymir um að vera en ekki útfrá því sem samfélagið eða umhverfið segir þér að vera eða gera. Þú getur allt það sem þig dreymir um og langar að gera og það eina sem getur stöðvað þig ert þú sjálf/ur og hausinn á þér.

Hvernig fer þerapían fram?

Þerapían samanstendur af 12 tímum, þar sem við hittumst í persónu eða á Zoom og er hver tími 60-90 mínútur. Í tímunum mæti ég þér þar sem þú ert og við tökum á ýmsu sem tengist sjálfsást, æskunni, fyrri reynslum og framtíðarsýn. Þú færð heimaverkefni í lok hvers tíma til að vinna á milli þeirra, en tímarnir eru á ca. 3 vikna fresti.


Ég mæli eindregið með að taka upp tímana til að hlusta á síðar, því það er margt og mikið sem kemur fram í þeim og við erum fljót að gleyma eftirá. Spjallið og fróðleikurinn sem þú færð í tímunum hjálpar þér að sjá hluti í nýju ljósi, breyta hugarfari á jákvæðan hátt, fylgja innsæinu þínu, hrósa þér og öðrum, tala betur um þig, skilja fólkið í kringum þig, skilja betur það sem fer í taugarnar á þér og af hverju, hækka orkuna þína og standa með sjálfri/sjálfum þér.


Verkefnin sem þú færð á milli tíma eru þannig gerð að þú getur notað þau aftur og aftur í gegnum lífið.

Þau eru gríðarlega góð til að hugsa betur um þig, breyta neikvæðri hegðun, hugsanamynstrum og skilja betur heiminn og fólkið í kringum þig. Því betur sem þú nærð að vinna verkefnin, því meira færðu út úr þerapíunni.Það "leiðinlegasta" sem ég lærði á þessari vegferð en samt það besta er það að öll berum við ábyrgð á okkur sjálfum. Allt það sem er að gerast í kringum þig ert þú að draga til þín og með því að hækka orkuna þína með jákvæðni og sjálfsvinnu verður mun skemmtilegra í kringum þig.


Öll þerapían og verkefnin innan hennar eru gerð til að byggja þig upp, gefa þér meira sjálfstraust, hjálpa þér upp úr erfiðleikum og sleppa tökum á því sem skiptir okkur ekki máli í lífinu í dag.


Eftir tímana færðu meiri metnað, drifkraft, verður jákvæðari og verður einnig rólegri þar sem lífið hefur svo margt að bjóða, við þurfum bara að sjá það sjálf.​